Fara á efnissvæði
+

Mannauður

Skipulag á starfsemi NTÍ byggir á sveigjanleika. Umfang starfseminnar er mjög mismunandi frá ári til árs þar sem tjónsatburðir ráða miklu um það hversu mikinn mannafla þarf hverju sinni. Að jafnaði starfa 6 starfsmenn í fullu starfi hjá stofnuninni, en þegar atburðir eiga sér stað er verkefnum ýmist úthýst eða fólk ráðið til tímabundinna starfa.

Skipurit NTÍ

+

Stjórn NTÍ

Stjórn NTÍ er skipuð fimm einstaklingum. Þrír eru kosnir af Alþingi. Vátryggingafélög sem innheimta iðgjöld (SFF) velja einn stjórnarmann og fjármála- og efnahagsráðherra skipar formann. Stjórnarmenn eru skipaðir til fjögurra ára í senn. Nánari upplýsingar um stjórnarmenn má finna í stjórnarháttayfirlýsingu.

sjá nánar.
+

Varamenn í stjórn NTÍ

Varamenn eru kosnir á sama hátt og aðalmenn. Nánari upplýsingar um varamenn má finna í stjórnarháttayfirlýsingu.

Sjá nánar
+

Endurskoðunarnefnd NTÍ

Endurskoðunarnefnd NTÍ er skipuð þremur nefndarmönnum sem kosnir eru af stjórn NTÍ. Hlutverk nefndarinnar er að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila, áhættustýringu og virkni innra eftirlits. Hún skal tryggja gæði ársreikninga og annarra fjárhagsupplýsinga stofnunarinnar og óhæði endurskoðenda þess. Nánari upplýsingar um nefndarmenn má finna í stjórnarháttayfirlýsingu.

Sjá nánar