Upplýsingar um tryggingar NTÍ
Hvernig er virka tryggingar NTÍ ?
NTÍ lét útbúa stutt myndband um hvað er tryggt af NTÍ og hvað ekki ásamt öðru sem gott er að hafa í huga í tengslum við náttúruhamfarir. Hægt er að horfa á upplýsingamyndband NTÍ hér.
Hvaða atburðir eru bótaskyldir hjá NTÍ?
NTÍ bætir beint tjón af völdum:
- eldgosa
- jarðskjálfta
- skriðufalla
- snjóflóða
- vatnsflóða
Í reglugerð um NTÍ nr. 770/2023 má finna nánari skilgreiningar um atburðina.
Dæmi um atburði sem eru ekki bótaskyldir hjá NTÍ
- Flóð vegna leysingavatns/asahláku og skýfalls.
- Óveðurstjón og foktjón.
- Snjóþungi, þegar eignir sligast eða brotna undan snjó.